Ævintýraleg andlitsmeðferð 75 mín.
28.900 kr.
Meðferðin byrjar á róandi og slakandi ilmhjúp. Þá tekur við yfirborðs- og djúphreinsun húðarinnar ásamt nuddi á bringu, herðar, háls, axlir, andlit og höfuð ca 20 – 25 mín. Því næst er maski borinn á, sem valinn er sérstaklega fyrir hverja húðgerð, en við bjóðum upp á úrval maska.
Á meðan maskinn bíður eru hendur nuddaðar og þrýstingur gefinn á fætur.
Meðferðinni lýkur á dagnæringu sem valin er fyrir þína húðgerð.