Snyrtistofan Dimmalimm 20 ára

 In Fréttir

Það eru aldeilis tímamót að fagna tvítugsafmæli og það gerir Snyrtistofunnar Dimmalimm íseptember. Þá er er ekki annað hægt en líta til fortíðar og skoða söguna. Mig langar að byrja á því að segja ykkur frá því hvernig þetta Dimmalimm ævintýri byrjaði.


Ég var stödd hjá tannlækninum mínum og sé að aðstoðarkona hans var klædd í alveg eins vinnuslopp og ég hafði átt þegar ég var í snyrtifræðináminu í FB. Hvítur sloppur með púffermum og gulltölum. Ég kunni nú ekki mikið að meta hann á sínum tíma en þaaaað sem ég vildi að ég ætti hann núna (eeelska púffermar). Ég auðvitað spurði dömuna út í sloppinn og kom þá í ljós að hún væri snyrtifræðingur og væri með lítinn rekstur sem hún bauð mér til sölu.Þá fór hausinn á mér á flug að vega og meta allar mögulegar og ómögulegar útkomur þess að fara út í eigin rekstur. Hausinn eða kannski frekar hjartað komst að þeirri niðurstöðu að þetta væri málið og allt fór á fulla ferð.


Ég var á leiðinni erlendis þarna á sama tíma og auðvitað fór sumarfrísferðin í það að skipuleggja, stofna fyrirtæki, finna nafn á stofuna og græja og gera það sem þurfti. Þarna fékk ég auðvitað forsmekkinn af sumarfríum framtíðar minnar. Ég vissi alltaf að ég vildi kalla stofuna Dimmalimm en hélt að það væri frátekið. Móðir mín sætti sig nú ekki með þau svör og fór á stúfana og komst að því að ég gæti notað nafnið Snyrtistofan Dimmalimm. Dimmalimm var einfaldlega það eina sem mér fannst passa og því ofur ánægð með að það hafi gengið eftir. Það var auðvitað ástæða fyrir því eins og öllu og sæt saga á bak við það sem mér þykir afar vænt um og langar að segja ykkur frá.


Ég er uppalin á Seltjarnarnesi og bjó í litlu, fjörugu fjölbýlishúsi þar sem var mikill samgangur á milli íbúa. Í íbúðinni á móti okkur fjölskyldunni bjó kona að nafni Valdís sem ég kallaði alltaf ömmu Dísu eða ömmu hinumegin, enda hafði ég verið heimalningur þar frá fæðingu og hún auðvitað amma mín. Það var umrædd elsku amma Dísa sem gaf mér gælunafnið Dimmalimm. Dimmalimm, eftir prinsessunni fallegu og góðu í ævintýrinu um Dimmalimm. Þótti ömmu ég mikil prinsessa, fallegust og best með krullur eins og Dimmalimm, hún var reyndar ljóshærð en það er annað mál. En þannig varð gælunafnið, sem hafði fylgt mér frá barnæsku, síðar að nafni litlu snyrtistofunnar minnar sem
varð svo smám saman að einhverju miklu stærra. Og þannig var nú sagan af Dimmalimm…. eeen það eru ekki öll ævintýri úti enn.


Í 20 ár hefur Dimmalimm verið litla barnið mitt og risastór hluti af mínu lífi farið í að sinna því verkefni af alúð og fagmennsku og stendur hjarta mínu nær. Eins og svo margir vita þá opnaði Snyrtistofan Dimmalimm dyrnar þann 1. september 2006 í litlu 14 fermetra herbergi inn af hárgreiðslustofu í Grafarholtinu. Þegar ég var að opna stofuna var mér bent á spennandi ítalskt húðvörumerki sem ég fór og athugaði með og heillaði mig gjörsamlega. Það voru ekki bara vörurnar heldur hugsunin á bakvið merkið, umgjörðin og meðferðirnar sem höfðuðu til mín. Dimmalimm hefur unnið með Comfort Zone húðvörurnar frá Davines alveg frá upphafi og það samstarf hefur orðið stór hluti af okkar faglegu vegferð en það er gaman að segja frá því að Comfort Zone fagnaði einmitt 30 ára afmæli sínu fyrr á þessu ári.

Það voru nú ekki biðraðir út á götu fyrst um sinn en alltaf mætti ég samviskusamlega sama hvort bókunarbókin var full eða ekki, í von um að síminn myndi hringja eða einhver reka inn nefið. Smám saman fór boltinn að rúlla. Viðskiptavinirnir urðu fleiri. Fjölskylda, vinir, fyrrum vinnufélagar og hverfisfólkið varð aðal viðskiptavinahópurinn. Það var ekki mikið verið að vinna með samfélagsmiðla né áhrifavalda á þessum tíma. Það var bara gamli góði síminn og vonin um að einhver segði öðrum frá okkur. En þannig flaug fiskisagan og litla stofan fór hægt og rólega að vaxa. Í kringum 2007 þá skipti ég rýminu upp í 2 litla klefa og ég fékk minn fyrsta starfsmann. Þarna fóru hugmyndir um nema að myndast og byrjaði að taka að mér nema. Svo kom hrunið 2008, ég hélt bara áfram mínu striki og árið 2009 fluttum við starfsemina í Hraunbæinn þar sem við erum enn og hófst þar nýr kafli.


Dimmalimm stækkaði hægt og rólega. Starfsfólki fjölgaði, við vorum 1, 2, 3, 4 og svo 5 Dimmalimm og starfsemin þróaðist smám saman í það sem hún er í dag. Á tímabili leigði ég líka út herbergi og þar var hún Marína okkar með sína stofu í nokkur ár. En það kom að því að ég þurfti að nýta hvert einasta herbergi fyrir Dimmalimm og teljum við sjö nú. Margt hefur gerst á þessum 20 árum, fjöldinn allur af viðskiptavinum, nemum í starfsþjálfun og á samning sem hafa klárað sveinsprófin sín ásamt öðrum starfsmönnum. Flestir sveinarnir okkar hafa lært á Dimmalimm eða ég kennt þeim í skólanum sem er svo skemmtilegt.

Á þessum 20 árum hef ég menntað mig í kennslufræðum, kennt snyrtifræði og lært dáleiðslu svo eitthvað sé nefnt og er sennilega ekki hætt að viða að mér þekkingu. Mér finnst yndislegt að geta sameinað að vinna sjálf við fagið og miðlað þekkingu og reynslu áfram til næstu kynslóðar snyrtifræðinga. Við höfum fengið ómetanleg tækifæri til að sækja okkur þekkingu og innblástur. Meðal annars farið til Parma í tvígang og heimsótt höfuðstöðvar comfort zone og Davines sem var alveg meiriháttar upplifun. Slíkar ferðir gefa manni ekki bara faglega þekkingu heldur líka minningar og samheldni sem lifa lengi. Þar fyrir utan sækjum við reglulega námskeið og sinnum endurmenntun. Við höfum farið í gegnum ýmislegt á þessum árum eins og góðæri, efnahagshrun, Covid og alls konar hæðir og lægðir en þannig er að reka fyrirtæki, ekki alltaf dans á rósum. Það er lærdómsríkt, oftast skemmtilegt og gefandi en oft á köflum erfitt og krefjandi. En ástríðan er þarna! Fagið og fagmennskan, þekking, þróun og fræðsla, handfylli af þrjósku og fólk, mikið af fólki og það er það allra besta og stærsti drifkrafturinn.


Enda væri engin Dimmalimm án fólks. Hvorki án ykkar elsku viðskiptavinirnir né starfsfólks. Mörg ykkar hafa verið með mér frá upphafi Dimmalimm og sumir jafnvel frá því að ég var nemi í snyrtifræði árið 1999. Að fá að fylgja fólki í gegnum lífið á alls konar tímamótum og í hversdagsleikanum er einstakt, það er gefandi og dýrmætt. Dimmalimm er einstakur vinnustaður að mínu mati með svo einstaklega, góðu, hjartahlýju, faglegu og metnaðarfullu fólki sem mér þykir afar vænt um. Ég hef verið ótrúlega heppin með starfsfólk í gegnum árin og er þeim ævinlega þakklát fyrir fagmennsku, vináttu, hjálpsemi, tryggð og þolinmæði. Og ekki síst fyrir að þola smámunasemina í mér og allar hugmyndirnar. Því þær eru stundum margar. „Væri ekki sniðugt að breyta þessu aðeins?“ „Eigum við ekki bara að mála?“„Ég var að fá hugmynd…“ Og áður en fólk veit af er komið nýtt verkefni.

En það er einmitt þessi samvinna sem hefur gert Dimmalimm að því sem hún er. Ég get ekki skrifað svona póst án þess að þakka elsku Rebekku minni sem hefur verið mér við hlið og mín hægri hönd í Dimmalimm og besty síðan 2015. Dimmalimm væri ekki á sama stað án hennar og satt best að segja veit ég ekki hvað ég hefði gert án hennar. Hún hefur gengt stóru hlutverki í sögu Dimmalimm. Hún hefur verið aðstoðarforstjórinn minn eða látið mig halda það (ég þori ekki að koma nálægt neinum miðlum eða álíka skipulagningu.) Hún hefur tekið við keflinu í minni fjarveru, stjórnað og stýrt, séð um nemana okkar, haldið utan um alla miðlana okkar, útbúið aragrúa af efni fyrir okkur, myndbönd og auglýsingar ásamt því auðvitað að vera frábær fagmaður, kennari og Comfort Zone ambassador.


Kennsla og miðlun þekkingar hefur líka orðið stór hluti af mínu lífi og sögu Dimmalimm. Við höfum í gegnum árin tekið að okkur fjölda nema í snyrtifræði, bæði á námssamning og einnig ótal nemendur í starfsþjálfun. Held að þetta fari að nálgast 70 manns. Það er ánægjulegt að segja frá því að fjórir nemar frá Dimmalimm hafa hlotið verðlaun frá Iðnaðarmannafélags Reykjavíkur fyrir afburðaárangur á sveinsprófi sem gerir fagmannshjartað virkilega stolt en hún Rebekka er einmitt sú fyrsta í þeim hópi. Einnig er gaman að geta þess að Kristín Ýr var í fyrsta sæti á Íslandsmóti iðn- og verkgreina 2023. Það er mér einstaklega dýrmætt að fá að fylgjast með Dimmalimmungunum mínum stíga sín fyrstu skref í faginu og fylgjast með þeim fljúga fullvængjaðar sem fyrirmyndarfagmenn út í lífið. Margar af okkar fyrrverandi Dimmalimmdúllum starfa enn við fagið og sumar hafa skellt sér í eigin rekstur. Það er líka svolítið skemmtilegt að horfa á núverandi starfsmannahópinn okkar. Allar sem starfa hjá okkur í dag hafa annaðhvort lært hjá okkur á Dimmalimm eða ég kennt þeim í skólanum nema Halldóra. En Halldóra hefur verið lengi í faginu og er okkar mesti stuðbolti sem hefur verið svo yndisleg að hugsa um litlu Dimmalimm mína í fjarveru minni og Rebekku.


Kristín og Íris byrjuðu hjá okkur í sumar og verða hjá okkur áfram. Kristín útskrifaðist með sveinspróf 2024 og hefur starfað í bransanum síðan. Íris verður áfram hjá okkur á fimmtudögum og klárar skólann um jólin. Karen og Þórey munu fara í sveinsprófið í október og halda áfram að taka vel á móti ykkur. Allar þessar Dimmalimmdúllur eru alveg yndislegar, ljúfar, duglegar, flinkar og faglegar. Ég verð áfram í kennslunni meðfram störfum á Dimmalimm í hlutastarfi, svo gott er að vera tímanlega að tryggja sér tíma. Rebekka kemur svo aftur til okkar úr fæðingarorlofi í október. Við bíðum spenntar eftir að fá hana til baka.

Dimmalimm á ansi marga velunnendur á bak við tjöldin. Foreldrar, systkini, frændur, vinir og starfsfólk hafa í gegnum árin mætt með pensil, skrúfvél, verkfæri eða bara tvær hendur þegar mér hefur dottið eitthvað nýtt í hug. Það hefur verið ómetanlegt og þakka ég ykkur öllum frá mínum dýpstu hjartarrótum. Og svo er auðvitað einn maður sem á alveg sérstakan þakkarkafla skilið, en það er hann elsku Grímur minn. Takk fyrir þolinmæðina og fyrir að styðja við allar góðu hugmyndirnar mínar og láta þær verða að veruleika. Takk fyrir allar framkvæmdirnar, lagfæringarnar, stússeríð og „geturðu aðeins komið og kíkt á eitt?“ verkefnin sem þú hefur sinnt af stakri prýði. Takk fyrir alla þá vinnu sem þú hefur innt af hendi en sóttir aldrei um.Afkvæmið hefur heldur ekki sloppið við Dimmalimm-verkefnin þrátt fyrir að vera aðeins 6 ára. Hann hefur lagt hönd á plóg og hjálpað mömmu sinni með hin ýmsu verkefni þegar foreldrarnir hafa eytt
helgunum í að dytta að stóra barninu.

Í 20 ár hefur Dimmalimm verið stór partur af mínu lífi og er miklu meira fyrir mér en bara vinnustaður.
Dimmalimm er litla barnið mitt. Ég hef lagt mig fram um að hlúa að henni, byggja hana upp og sinna af alúð og fagmennsku með dyggri aðstoð fólksins í kringum mig. Allar mínar dásamlegu Dimmalimmdúllur núverandi og fyrrverandi, einu sinni Dimmalimmdúlla, alltaf Dimmalimmdúlla. Þið eigið allar sérstakt pláss í hjarta mínu.

Eins og flestir sem þekkja mig vita þá ELSKA ég afmæli og húllumhæ. Þannig að það kemur auðvitað ekki til greina að láta 20 ára afmælið líða hjá í hljóði. Það verða alls konar tilboð, kaupaukar, leikir, lukkupotturinn og almenn gleði. Langar mig að nýta tækifærið og þakka okkar frábæru birgjum fyrir samstarfið og samvinnuna og taka þátt í þessu með okkur. Ég hvet ykkur öll eindregið að fylgjast vel með fjörinu því veislan stendur út septembermánuð og eitthvað nýtt og spennandi dottið inn.

Að lokum:
Ég er meyr að líta yfir vegferðina og er óendanlega þakklát fyrir að fá að gera það sem ég brenn fyrir. Fyrir að þið viðskiptavinirnir okkar leggið ykkar traust í okkar hendur, tryggðina og fyrir að velja okkur aftur og aftur. Takk Dimmalimmdúllurnar mínar, núverandi og fyrrverandi fyrir ykkar störf, framlag, fagmennsku, vináttu, hjálpsemi og þolinmæði. Og nemarnir okkar fyrir að leyfa okkur að vera hluti af ykkar vegferð. Takk fjölskylda og vinir fyrir alla hjálpina í gegnum tíðina. Takk allir samstarfsaðilar/heildsölurnar sem hafa verið með okkur og tekið þátt í öllu því sem okkur dettur í hug. Takk allir sem hafa komið við sögu Dimmalimm á einn eða annan hátt. Ég er stolt lítil Dimmalimm af ævintýrum okkar síðastliðin 20 ár og afar þakklát öllu því góða fólki sem hefur starfað með og hjá okkur á Dimmalimm og gert Dimmalimm af því sem hún er í dag. Við höldum ævintýrinu áfram um ókomna tíð.

Takk fyrir að velja okkur, takk fyrir mig.
Ykkar Dimmalimm,
Svana Björk

Nýlegar færslur
Hafðu sambandi

Sendu okkur skilaboð hérna, við höfum samband við fyrsta tækifæri.

0

Start typing and press Enter to search

Snyrtistofa | Dimmalimm
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.