Ert þú búin að endurnýja sólarvarnirnar fyrir sumarið? ☀️
Sólarvörn er ekki rauðvín 🍷❌ Hún verður ekki betri með tímanum. Margir geyma gamla sólarvörn frá síðustu Tenerife-ferð eins og hún sé erfðagripur, en sannleikurinn er sá að sólarvörn missir virkni með tímanum.
Algengast er að sólarvarnir hafi 12 mánaða lífstíma eftir opnun. Eftir það er ekki hægt að tryggja að virku efnin í vörninni, þessi mikilvægu sem verja húðina, séu enn í fullu fjöri.

Einnig skiptir miklu máli hvernig sólarvarnir eru geymdar. Sólarvörn sem hefur verið geymd í heitum bíl, sólbekk eða sundlaugartösku í langan tíma getur brotnað niður hraðar. Svo jafnvel þó líftíminn eigi að vera ár þá geta slæm geymsluskilyrði skemmt vöruna fyrr.
Gamalt krem = óáreiðanleg vörn!
Því er afar mikilvægt að endurnýja sólarvarnir árlega og njóta sólarinnar á öruggan hátt 💛 |
