Útsala!

Uklash- Let It Grow Lash Gjafasett Black

Original price was: 11.135 kr..Current price is: 8.908 kr..

Lengri, fyllri og fallega mótuð augnhár.

UKLASH Let It Grow gjafasettið sameinar eitt vinsælasta augnháraserum Bretlands sem örvar hárvöxt augnhára með því að næra, styrkja og virkja vaxtarferlið ásamt nýstárlegum Tubing Mascara sem gefur augnhárunum fallega áferð og lyftingu.

Eyelash Serum er klínískt prófað augnháraserum sem er auðvelt í notkun með sýnilegan árangur ásamt að vera samþykt af húð og augnlæknum. Það er einnig öruggt með augnháralengingum og linsum.

Tubing Mascara Black gefur augnhárunum lengra og lyftara útlit með árangursríkri formúlu sem smitast ekki og endist allan daginn,en fjarlægist auðveldlega með einungis heitu vatni. Formúlan er bæði mild við augnhárin og hentar daglegri notkun.

Eyelash Serum 3 ml
Tubing Mascara 7 ml

4 á lager

Lýsing

Lýsing

Af hverju þú munt elska settið

  • Sýnilegur árangur
    95% þátttakenda upplifðu augnhárin lengri.
    95% sáu meiri lyftingu og 95% meiri fyllingu með Tubing Mascara.*
  • Tubing-tækni
    Polymer-formúlan umlykur hvert augnhár fyrir lengd, lyftingu og fallega skilgreiningu.
  • Auðvelt að þrífa af með heitu vatni án þess að þurfa að nudda eða toga í augnhárin.
  • Nærandi formúlur -bæði serumið og maskarinn innihalda valin innihaldsefni sem næra og styðja við náttúruleg augnhár.
  • Tveir litir
    Tubing Mascara fæst í Americano Black fyrir dýpra og dramatískara útlit

*Byggt á neytendaprófun með 20 konum, 18 ára og eldri.


Eyelash Serum

1. Hreinsaðu augnsvæðið
Fjarlægðu farða með olíulausum farðahreinsi. Augnhárin og húðin eiga að vera hrein og þurr.

2. Berðu serumið á efri augnháralínuna
Berðu serumið á efri augnháralínuna eins og augnblýant. Ein stroka er nóg fyrir bæði augu. Notkun umfram það skilar ekki betri árangri og getur valdið viðkvæmni. Ekki bera serumið á neðri augnháralínu – það flyst sjálfkrafa við blikk.

3. Láttu serumið vinna yfir nótt
Fyrir bestan árangur skaltu bera serumið á að kvöldi og leyfa því að vinna yfir nóttina. Ef þú berð serumið á að morgni skaltu ganga úr skugga um að það sé alveg þornað áður en þú setur á þig förðun.

Hversu oft á að nota?

  • Fyrstu 12 vikurnar: Daglega
  • Eftir 12 vikur: 3–4 sinnum í viku, annan hvern dag

Mikilvægt

  • Forðastu beina snertingu við augu.
  • Ekki nota ef þú ert barnshafandi, með barn á brjósti eða yngri en 18 ára.
  • Geymið þar sem börn ná ekki til.
  • Við mælum með að gera forprófun (patch test). Hættu notkun ef roði eða erting kemur fram.
  • Hafðu samráð við lækni ef þú ert með undirliggjandi heilsufarsvandamál.
  • Frekari upplýsingar má finna á fylgiseðli í umbúðum.

Tubing Mascara

1. Lengd og lyfting
Dragðu sérhannaða pine cone-burstann frá rót og út í enda augnháranna. Notaðu oddinn á burstanum til að ná auðveldlega til smærri augnhára í innri og ytri augnkrókum.

2. Byggðu upp meiri fyllingu
Á meðan maskarinn er enn rakur má bæta við fleiri umferðum til að fá meiri fyllingu, lengd og skilgreiningu. Berðu einnig á neðri augnhár ef þess er óskað.

3. Fjarlægðu með heitu vatni
Lokaðu augunum og bleyttu augnhárin með heitu vatni. Strjúktu síðan varlega yfir augnhárin þar til tubing-formúlan losnar af.

 

Lykilinnihaldsefni

Eyelash Serum:

Biotin Peptide
Gegnir mikilvægu hlutverki í vinnslu fitusýra og eykur virkni þeirra, sem leiðir til sterkari og fyllri augnhára, augabrúna og hárs.

Vitamin B5 (Panthenol)
Viðgerð, verndun og næring fyrir hársekkina til að stuðla að hamingjusömum og heilbrigðum vexti.

Myristoyl Pentapeptide-17
Örvar framleiðslu keratíns, sem er mikilvægt prótein fyrir löng og heilbrigð augnhár og augabrúnir.

Tubing Mascara

Arginine
Amínósýra með rakagefandi eiginleika sem hjálpar til við að næra augnhárin og viðhalda heilbrigðu útliti þeirra.

Shea Butter
Nærandi og rakagefandi sheasmjör sem hjálpar til við að mýkja og næra augnhárin.

Sunflower Wax
Sólblómavax sem gefur formúlunni sveigjanleika og hjálpar maskaranum að halda augnhárunum fallega mótuðum og lyftum yfir daginn.