Litun og plokkun/vax

Við litum augabrúnir með nýjustu Liquid Hybrid Dye litunum frá Supercilium. Þessir litir eru ofurpigmentaðir og gefa djúpan lit sem helst allt að 11 daga á húð og allt að 6 vikur í hárum. Endingin er þó alltaf persónubundin.
Formúlan er rík af keratíni sem styrkir, verndar, endurlífgar og nærir hárin án þess að skaða þau. Liturinn hentar öllum húðgerðum, einnig feitri húð og er frábær með brow lamination.
Áferðin er mjúk, gefur náttúrulegt og vel mótað útlit .

🌿 Vegan, cruelty-free og laus við parabena, ilmefni & súlföt – með náttúrulegum innihaldsefnum eins og kamillu, aloe vera, saffran, indverskt krækiber (Amla) og rósablóm sem er nærandi og rakagefandi fyrir húð og hár.

Við leggjum mikla áherslu á að veita faglega og vandaða þjónustu og ráðgjöf varðandi litablöndun og mótun augabrúna sem henta hverjum og einum.

Við mótum augabrúnirnar eftir óskum hvers og eins með tilliti til andlitsfalla og náttúrulegs hárvaxtar.

Eftir meðferð

  • Ráðlagt er að bleyta ekki augabrúnirnar, bera feit krem eða nudda þær í amk. 24 klst. til að auka endingu litarins.

Þegar bókað er í plokkun/vax án litunnar eru augabrúnirnar mótaðar og hreinsaðar með plokkun og/eða vaxi, allt eftir þörfum og óskum hvers og eins.

Brow Lamination

Brow Lamination ferlið felur í sér að slétta úr og temja augabrúnahár á þann hátt sem óskað er eftir. Hvort sem það er ýktara lift útlit eins og það sem við höfum séð með sápuaugabrúnum, til að leiðrétta óreglulegan vöxt og götóttar brúnir eða til þess að gefa augabrúnunum sléttara, tamið útlit þá gefur meðferðin útlit fyrir þéttari hárvöxt og þykkri augabrúnir.

Endingartími allt að 6-8 vikur.

Frábendingar við Brow Lamination

  • Psoriasis (sóríasis) / Exem / Acne
  • Sár á meðferðarsvæði
  • Nýlegar aðgerðir á augnsvæði
  • Nýleg varanleg förðun (microblade/hairstroke/tattoo)
  • Sólbruni
  • Mjög viðkvæm húð
  • Veikgerð eða skemmd augabrúnahár
  • Lyf við bólusjúkdómum eins og Decutan (ísótretínóín), Doxylin (doxycycline), Epiduo, Differin og Duac (adapelene og benzóýl peroxíð) eða annað.
  • Augnsýkingar/bólgur og herpes simplex
  • Þungun/brjóstargjöf
  • Notkun á A-vítamín afleiðum, sterakremum eða ávaxtasýrum
  • Serum sem ýta undir hárvöxt
  • Sjálfbrúnkuefni ætti ekki að nota á húðina í viku fyrir meðferð.
  • Bólgið augnsvæði.
  • Ef þú hefur áður fengið viðbrögð við svipaðri meðferð.

Eftir meðferð

  • Ráðlagt er að fara alltaf vel eftir leiðbeiningum um meðhöndlun augabrúnanna eftir Brow Lamination.
  • Haltu augabrúnunum þurrum og hreinum í 24-48 tíma eftir meðferð.
  • Forðastu að snerta augabrúnirnar eða svæðið sem er vaxað/plokkað eftir meðferðina, gefðu húðinni og hárunum tíma til að jafna sig.
  • Forðastu sólböð, ljósabekki og beinan hita, ekki fara í sund, gufu eða heita potta.
  • Ekki bera á húðina retinol (eða aðrar a-vítamín afleiður), ávaxtasýrur (AHA/BHA), sterakrem eða nota aðrar húðflagnandi/ertandi meðferðir í að minnsta kosti 3 daga fyrir og eftir meðferð.

Lash Lift

Lash lift opnar augun og gefur augnhárunum þéttara, lengra og dekkra útlit.

Endingartími allt að 6-8 vikur.

Frábendingar við Lash Lift

  • Augnsýkingar/sjúkdómar
  • Nýleg augnaðgerð
  • Ofnæmi fyrir vöru
  • Mjög viðkvæm augu
  • Mjög vot augu
  • Tárubólga
  • Vogris/bakteríusýkingar í augum
  • Augnþurrkur
  • Notkun ávísaðra lyfja augndropa
  • Meðganga/brjóstagjöf
  • Lyfjameðferð Thyroxin (getur í sumum tilfellum komið í veg fyrir að augnhárin krullist)

Eftir meðferð

  • Forðastu að bleyta augnhárin, gufu og þess háttar í 24 tíma eftir meðferðina og ekki nota augnháraserum sem ýta undir hárvöxt fyrstu 48 tímana.
Hafðu sambandi

Sendu okkur skilaboð hérna, við höfum samband við fyrsta tækifæri.

0

Start typing and press Enter to search

Snyrtistofa | Dimmalimm
Friðhelgis yfirlýsing

Þessi vefsíða notar fótspor til að við getum veitt þér bestu notendaupplifun. Upplýsingar um fótspor eru geymdar í vafranum þínum og framkvæma aðgerðir eins og að þekkja þig þegar þú kemur aftur á vefsíðu okkar og hjálpa teymi okkar að skilja hvaða hluta vefsíðunnar þér finnst áhugaverðast og gagnlegast.